25 janúar 2010

*****
Vikuna 1. febrúar til 6. febrúar 2010 verður opin skólavika í GÍS. Forráðamönnum nemenda er hér með boðið að koma í heimsókn í skólann. Best er að koma í tíma nemandans t. d. seinni hluta tímans ca. 20 - 30 mín. Með þessu geta forráðamenn, nemandi og kennari hittst á stuttum fundi. Nemandi og kennari munu gefa smá innsýn í viðfangsefni sín. Einnig er tilvalið að ræða þau mál sem eru mikilvæg fyrir hvern og einn. Þeir sem ekki eiga heimangegnt geta haft samband við kennara símleiðis. Símanúmer kennara er hægt að fá hjá skrifstofunni í síma 581 1281
Knúið með Blogger.